Pistlahöfundur:
  • 06.09.2024

50+ landslið Íslands á EGA mótum 2024 - rástímar, staða og úrslit

Kvenna – og karlalandslið Íslands 50 ára og eldri keppa á EGA mótum dagana 3.-7. september.

Kvennaliðið keppir í Slóveníu og karlaliðið í Búlgaríu.

Aðeins áhugakylfingar eru með keppnisrétt í þessum landsliðsverkefnum.

Kvennalið Íslands er þannig skipað:

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á EGA +50 kvenna.

Ragnheiður Sigurðardóttir, GKG
Þórdís Geirsdóttir, GK
Anna Snædís Sigmarsdóttir, GK
María Guðnadóttir, GKG
Elsa Nielsen, NK
Ásgerður Sverrisdóttir, GR

Steinunn Sæmundsdóttir, GR, gat ekki gefið kost á sér í þetta verkefni og kemur Ásgerður inn í liðið í hennar stað.

Kvennaliðið keppir í Slóveníu á CUBO golfsvæðinu sem er ekki langt frá höfuðborginni Ljubljana. Nánari upplýsingar hér:

Íslenska kvennaliðið +50 endaði í 16. sæti eftir höggleikskeppnina – og leikur í B-riðli um 9.-16. sætið.

Í 1. umferð holukeppninnar mætti Ísland liði Skotlands, og sá leikur fór 4,5 – 0,5 fyrir Skotland.

#image_title
#image_title
Frá vinstri: Ásgerður Sverrisdóttir, Elsa Nielsen, Ragnheiður Sigurðardóttir, Þórdís Geirsdóttir, María Málfríður Guðnadóttir og Anna Snædís Sigmarsdóttir.

Karlalið Íslands er þannig skipað:

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á EGA + 50 karla:

Einar Long, GR
Gunnar Páll Þórisson, GKG
Hjalti Pálmason, GM
Kjartan Drafnarson, GK
Sigurbjörn Þorgeirsson, GFB
Tryggvi Traustason, GSE

Karlaliðið keppir í Búlgaríu, á Black Sea Rama vellinum við Svarta hafið.

Nánari upplýsingar hér:

Karlalið Íslands +50 endaði í 9. sæti eftir höggleikskeppnina – og leikur um 9.-16. sætið í holukeppnina.

Ísland sigraði Austurríki 3,5-1,5 í fyrsta leiknum í B-riðlinum.

#image_title
#image_title
Frá vinstri: Kjartan Drafnarson, Einar Long, Hjalti Pálmason, Tryggvi Traustason, Gunnar Páll Þórisson, Sigurbjörn Þorgeirsson.