Landslið

Deildu:

Efri röð frá vinstri: Hjalti Kristján Hjaltason, Guðlaugur Þór Þórðarson, Kristján Karl Guðjónsson, Arnar Daði Svavarsson, Gunnar Þór Heimisson, Ágúst Már Þorvaldsson, Arnar Freyr Viðarsson. Miðröð frá vinstri: Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, Erna Steina Eysteinsdóttir, Elva María Jónsdóttir, Eva Fanney Matthíasdóttir, Sara María Guðmundsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir, Embla Hrönn Hallsdóttir, Eva Kristinsdóttir. Neðsta röð frá vinstri: Ólafur Björn Loftsson, Halldór Jóhannsson, Dagbjartur Sigurbrandsson, Máni Freyr Vigfússon, Óliver Elí Björnsson, Skarphéðinn Egill Þórisson, Björn Breki Halldórsson
Efri röð frá vinstri: Hjalti Kristján Hjaltason, Guðlaugur Þór Þórðarson, Kristján Karl Guðjónsson, Arnar Daði Svavarsson, Gunnar Þór Heimisson, Ágúst Már Þorvaldsson, Arnar Freyr Viðarsson. Miðröð frá vinstri: Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, Erna Steina Eysteinsdóttir, Elva María Jónsdóttir, Eva Fanney Matthíasdóttir, Sara María Guðmundsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir, Embla Hrönn Hallsdóttir, Eva Kristinsdóttir. Neðsta röð frá vinstri: Ólafur Björn Loftsson, Halldór Jóhannsson, Dagbjartur Sigurbrandsson, Máni Freyr Vigfússon, Óliver Elí Björnsson, Skarphéðinn Egill Þórisson, Björn Breki Halldórsson

Landsliðsverkefni

Stærstu landsliðsverkefnin eru Evrópumótin sem fara fram árlega og Heimsmeistaramót kvenna – og karla sem leikin eru annaðhvert ár. 


Fylgstu með landsliðinu á TikTok

Landsliðshópur 2026

Valviðmið landsliðshóps

Afreksstjóri velur kylfinga í landsliðshóp með því að nota eftirfarandi viðmiðanir (í engri sérstakri röð)

  • Staða á heimslista
  • Forgjöf
  • Frammistaða í mótum innanlands og erlendis
  • Meðaltal högga á keppnistímabili
  • Persónulegur metnaður og ástundun
  • Hæfni og framfarir
  • Endurgjöf frá þjálfurum afrekskylfinga
  • Eftirsóknarverð persónueinkenni, svo sem vilja og skyldurækni, þrauseigju, sjálfstjórn, líkamlega hreysti, gott viðmót og stuðning við liðsfélaga
Arnar Daði Svavarsson GKG
Arnar Freyr Viðarsson GA
Ágúst Már Þorvaldsson GA
Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir GR
Björn Breki Halldórsson GKG
Bryndís Eva Ágústsdóttir GA
Elva María Jónsdóttir GK
Embla Hrönn Hallsdóttir GKG
Erna Steina Eysteinsdóttir GR
Eva Fanney Matthíasdóttir GKG
Eva Kristinsdóttir GM
Guðlaugur Þór Þórðarson GL
Gunnar Þór Heimisson GKG
Gunnlaugur Árni Sveinsson GKG
Halldór Jóhannsson GK
Hjalti Kristján Hjaltason GKG
Kristján Karl Guðjónsson GM
Lilja Maren Jónsdóttir GA
Markús Marelsson GK
Máni Freyr Vigfússon GK
Óliver Elí Björnsson GK
Pamela Ósk Hjaltadóttir GKG
Perla Sól Sigurbrandsdóttir GKG
Sara María Guðmundsdóttir GM
Skarphéðinn Egill Þórisson NK
Tómas Eiríksson Hjaltested GR
Veigar Heiðarsson GA

 

Stefna GSÍ

 

Gildi

Heiðarleiki

Virðing

Lífsgæði

Alþjóðleg áhugamannamót

GSÍ skiptir alþjóðlegum áhugamannamótum upp í eftirfarandi 4 flokka.

Áherslur eru endurskoðaðar á ári hverju. 

A flokkur:

GSÍ leggur mikla áherslu á eftirfarandi mót. Þjálfarateymi fylgir með og GSÍ ber kostnað þátttakenda að fullu.

HM liða (World Amateur Team Championship – Eisenhower & Espirito Santo Trophies)

EM liða (European Team Championship)

European Young Masters

Spirit International Championship

B flokkur:

GSÍ leggur áherslu á eftirfarandi mót og veitir umfangsmikinn styrk.  Þáttakendur bera ábyrgð á skráningu og ferðatilhögun og lögð er áhersla að þjálfari veiti góðan stuðning. 

EM einstaklinga (European Individual Amateur Championships)

Opna breska (The Amateur & The Womens Amateur Championships)

Opna breska pilta og stúlkna (Boys Amateur & Girls Amateur)

Opna bandaríska (U.S. Amateur Championship)

Opna bandaríska pilta og stúlkna (U.S. Junior Amateur Championship)

C flokkur: 

 

GSÍ mælir með ákveðnum mótum og veitir minni styrki úr ferðasjóði. Þátttakendur bera ábyrgð á skráningu og ferðatilhögun og þjálfari veitir stuðning eftir bestu getu.

 

D flokkur:

 

GSÍ mælir með ákveðnum mótum en veitir ekki fjárhagslegan stuðning. Þátttakendur bera ábyrgð á skráningu og ferðatilhögun. 

 

Birt með fyrirvara um breytingar.

 

Valviðmið í Evrópu- og Heimsmeistaramót

Afreksstjóri velur lið og einstaklinga til þátttöku með því að nota eftirfarandi viðmiðanir (í engri sérstakri röð)

  • Staða á heimslista áhugamanna
  • Frammistaða í mótum í aðdraganda valsins
  • Frammistaða í mótum innanlands og erlendis
  • Meðaltal högga á keppnistímabili
  • Hæfni kylfings til þess að vera hluti að liði og stuðla að markmiðum liðsins og skila sínu í aðstæðunum.
  • Eftirsóknarverð persónueinkenni, t.d. vilja, skyldurækni, þrauseigju, sjálfstjórn, líkamlega hreysti, gott viðmót og stuðning við liðsfélaga

Þessi listi er leiðbeinandi og ekki tæmandi. Einstaklingar þurfa ekki að vera í landsliðshóp til að vera valdir í landsliðsverkefni.

Heimslisti áhugamanna

Karlar

Konur

Æfingabúðir

Áhersla á fræðslu og keppnislíkar æfingar  Tæknileg þjálfun fer fram hjá þjálfurum afrekskylfinga.  

Breytilegar staðsetningar, fer eftir eðli æfingarinnar.

Heilbrigðisteymi

Heilbrigðisteymi samanstendur af fagfólki sem koma að heilbrigðisþáttum og mælingum s.s. læknar, sjúkraþjálfarar, íþróttasálfræðingar, næringafræðingar, íþróttafræðingar og annað fagfólk

Markmið með heilbrigðisteymi er að efla aðgengi afrekskylfinga að þess fagfólki sem mun aðstoða afrekskylfinga við að kanna og greina núverandi líkamlegt og andlegt ásigkomulag sem og tæknilega færni og kunnáttu. Þannig verður mögulegt að þróa áætlun og vinna að því bæta árangur og t.d. fyrirbyggja meiðsli. 

Heilbrigðisteymið mun jafnframt koma að almennri fræðslu fyrir afrekskylfinga

Landsliðskylfingar sem nýta sér þjónustu fagfólks heilbriðgisteymis geta sótt styrk frá GSÍ að hámarki 30.000kr á ári.

Árangur Íslands fyrri ára

EM og HM

Konur, HM 

Keppnisstaður Ár Árangur Fjöldi þjóða Sigurvegarar
  2023      
Frakkland 2022      
Singapúr 2020 Aflýst    
Írland 2018 39 57 Bandaríkin
Mexíkó 2016 43 55 Suður-Kórea
Japan 2014 29 50 Ástralía
Tyrkland 2012 36 53 Suður-Kórea
Argentína 2010 42 52 Suður-Kórea
Ástralía 2008 41 48 Svíþjóð
Suður-Afríka 2006 33 42 Suður-Afríka
Púertó Ríkó 2004 Tóku ekki þátt   Svíþjóð
Malasía 2002 Tóku ekki þátt   Ástralía
Þýskaland 2000 32 32 Frakkland
Chile 1998 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Filippseyjar 1996 Tóku ekki þátt   Suður-Kórea
Frakkland 1994 24 29 Bandaríkin
Kanada 1992 Tóku ekki þátt   Spánn
Nýja-Sjáland 1990 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Svíþjóð 1988 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Venesúela 1986 Tóku ekki þátt   Spánn
Hong Kong 1984 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Sviss 1982 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Bandaríkin 1980 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Fíjí 1978 Tóku ekki þátt   Ástralía
Portúgal 1976 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Dóminíska lýðveldið 1974 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Argentína 1972 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Spánn 1970 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Ástralía 1968 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Mexíkó 1966 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Frakkland 1964 Tóku ekki þátt   Frakkland

Karlar, HM

Keppnisstaður Ár Árangur Fjöldi þjóða Sigurvegarar
Dúbaí 2023      
Frakkland 2022      
Singapúr 2020 Keppni aflýst    
Írland 2018 35 72 Spánn
Mexíkó 2016 24 71 Ástralía
Japan 2014 Tóku ekki þátt   Spánn
Tyrkland 2012 27 72 Mexíkó
Argentína 2010 19 69 Danmörk
Ástralía 2008 29 65 Bandaríkin
Suður-Afríka 2006 34 65 Holland
Púertó-Ríkó 2004 27 65 Bandaríkin
Malasía 2002 39 62 Ástralía
Þýskaland 2000 20 59 Bandaríkin
Chile 1998 Tóku ekki þátt   Ástralía
Filippseyjar 1996 Tóku ekki þátt   Finnland
Frakkland 1994 36 44 Bandaríkin
Kanada 1992 Tóku ekki þátt   Nýja-Sjáland
Nýja-Sjáland 1990 Tóku ekki þátt   Svíþjóð
Svíþjóð 1988 39* frávísun 39 Bretland/Írland
Venesúela 1986 Tóku ekki þátt   Kólumbía
Hong Kong 1984 Tóku ekki þátt   Argentína, Japan
Sviss 1982 26 29 Argentína
Bandaríkin 1980 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Fijí 1978 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Portúgal 1976 Tóku ekki þátt   Taíwan, Bretland/Írland
Dómíníska lýðveldinu 1974 32 33 Brasilía, Bandaríkin
Argentína 1972 Tóku ekki þátt   Ástralía
Spánn 1970 36 36 Mexíkó
Ástralía 1968 Tóku ekki þátt   Bandaríkin, Bretland/Írland
Mexíkó 1966 30 32 Bretland/Írland
Ítalía 1964 32 33 Taíwan
Japan 1962 Tóku ekki þátt   Kanada
Bandaríkin 1960 Tóku ekki þátt   Bandaríkin
Skotland 1958 30 30 Ástralía, Bandaríkin, Bretland

Konur, EM:

 

Ár Sæti Fjöldi þjóða
2019 19 20
2018 18 18
2017 18 19
2016 16 20
2015 19 21
2014 16 20
2013 17 19
2011 15 19
2010 17 17
2009 16 18
2008 Tóku ekki þátt 16
2007 Tóku ekki þátt 16
2005 15 15
2003 Tóku ekki þátt 14
2001 16 18
1999 Tóku ekki þátt 17
1997 Tóku ekki þátt 16
1995 18 19
1993 15 16

Hegðunarviðmið ÍSÍ

Hegðunarviðmið ÍSÍ

Samskiptaráðgjafi íþrótta og æskulýðsstarfs

Samskiptaráðgjafi hefur það markmið að auka öryggi í íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Markmiðið er að allir geti tekið virkan þátt á sínum vettvangi og jafnframt leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem hafa átt sér stað án þess að óttast afleiðingar. Þjónusta og ráðgjöf samskiptaráðgjafa stendur öllum þeim til boða sem tilheyra skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi á landinu. Til samskiptaráðgjafa er hægt að leita með mál er varða andlegt-, líkamlegt- og kynferðislegt ofbeldi og áreitni, einelti og önnur sambærileg tilvik sem hafa komið upp á vettvangi íþrótta- eða æskulýðsstarfs. Einnig mun samskiptaráðgjafi koma á samræmdum viðbragðsáætlunum á landsvísu í þessum málaflokkum.

Starfi samskiptaráðgjafa sinnir Sigurbjörg Sigurpálsdóttir, klínískur sálfræðingur, með aðsetur í húsnæði Domus Mentis- Geðheilsustöðvar. Hægt er að hafa beint samband við hana og er hún með símatíma alla þriðjudaga kl. 10-11, í síma 839-9100. Utan þess tíma er hægt að hringja í símanúmerið en ekki alltaf öruggt að ná samtali. Einnig er hægt að senda tölvupóst á sigurbjorg@dmg.is sem verður svarað eins fljótt og hægt er.

Eftir samtal eða fyrstu samskipti við samskiptaráðgjafa er boðið upp á viðtal ef málið varðar áreitni, ofbeldi eða einelti. Þá er frekari upplýsinga aflað og í kjölfarið eru næstu skref ákveðin, ávallt í samráði við þann sem leitar til samskiptaráðgjafa. Einnig er hægt að leita eftir ráðgjöf hjá samskiptaráðgjafa, ekki þarf að fara lengra með mál ef viðkomandi kýs það ekki.

Samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem getur aðstoðað og leiðbeint einstaklingum sem telja sig hafa verið beittir ofbeldi eða misrétti í íþrótta- eða æskulýðsstarfi. Þjónusta samskiptaráðgjafa er gjaldfrjáls.

Vefsíða samskiptaráðgjafa er www.samskiptaradgjafi.is og mun hún þjóna sem upplýsinga- og fræðslusíða starfsins. Hægt er að setja sig í samband við samskiptaráðgjafa í gegnum síðuna, tilkynna atvik og fá ráðgjöf eða aðrar upplýsingar.

Lyfjaeftirlit

GSÍ fylgir lögum ÍSÍ í lyfjamálum, lyfjaeftirlitsnefnd ÍSÍ sér um framkvæmd lyfjaeftirlits meðal íþróttafólks á Íslandi. Lyfjaeftirlitsnefndin starfar samkvæmt reglum Alþjóða lyfjaeftirlitsstofnunarinnar, WADA. Alþjóðlegt lyfjaeftirlit er framkvæmt í samræmi við Alþjóða lyfjaeftirlitsreglurnar (World Anti Doping Code) og alþjóðlega staðla WADA um lyfjaeftirlit.Gott lyfjaeftirlit er afar mikilvægt – bæði fyrir íþróttamanninn og íþróttina.


Guðrún Brá og Gunnlaugur Árni kylfingar ársins 2025


Guðrún Brá og Gunnlaugur Árni kylfingar ársins 2025

23.12.2025
Fréttir | Landsliðsfréttir


Ólafur Björn valdi 27 leikmenn í landsliðshóp GSÍ – spennandi vetur fram undan


Ólafur Björn valdi 27 leikmenn í landsliðshóp GSÍ – spennandi vetur fram undan

26.11.2025
Fréttir | Landsliðsfréttir


Ísland í 16. sæti á Heimsmeistaramóti stúlknalandsliða


Ísland í 16. sæti á Heimsmeistaramóti stúlknalandsliða

23.09.2025
Fréttir | Landsliðsfréttir


Ísland í 19. sæti eftir tvo hringi á Heimsmeistaramóti stúlknalandsliða


Ísland í 19. sæti eftir tvo hringi á Heimsmeistaramóti stúlknalandsliða

17.09.2025
Fréttir | Landsliðsfréttir


Fjórir íslenskir kylfingar keppa á European Young Masters


Fjórir íslenskir kylfingar keppa á European Young Masters

23.07.2025
Fréttir | Landsliðsfréttir


Hulda Clara og Perla Sól hefja leik á Evrópumóti einstaklinga í Þýskalandi


Hulda Clara og Perla Sól hefja leik á Evrópumóti einstaklinga í Þýskalandi

22.07.2025
Fréttir | Landsliðsfréttir

Deildu:

Auglýsing


Landslið Íslands klæðist FJ fatnaði