Pistlahöfundur:
  • 10.06.2024

Pamela Ósk og Guðjón Frans Nettómeistarar 2024

Pamela Ósk Hjaltadóttir og Guðjón Frans Halldórsson. Mynd/GKG

Nettó unglingamótið fór fram um s.l. helgi hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Mótið er hluti af Unglingamótaröð GSÍ og einnig var keppt í Golf14 fyrir keppendur 14 ára og yngri. Alls voru 140 keppendur á Leirdalsvelli en þetta er fjórða sinn sem GKG heldur þetta mót.  

Í elsta aldursflokknum, 15-18 ára, voru leiknar 54 holur. Þar stóðu Guðjón Frans Halldórsson, GKG og Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM uppi sem sigurvegarar og eru þau Nettómeistarar 2024. 

Á Leirdalsvelli léku keppendur í Golf14 tvo keppnishringi, alls 36 holur, á tveimur keppnisdögum. Á Mýrinni var keppt í Golf14 en sú keppni fór fram föstudaginn 6. júní.  

Úrslit úr Golf14 á Mýrinni eru hér:

Úrslit í Golf14 á Leirdalsvelli – stúlkur

Nafn Klúbbur hringurhringurSamtals
1Elva María JónsdóttirGK8083163
2Sara María Guðmundsdóttir GM9192183
3Eiríka Malaika StefánsdóttirGM9985184
Frá vinstri: Ástrós Arnarsdóttir, íþróttastjóri GKG, Sara María, Elva María, Eiríka Malaika, Úlfar Jónsson mótsstjóri.

Úrslit í Golf14 á Leirdalsvelli – drengir

NafnKlúbbur hringurhringurSamtals
1Björn Breki HalldórssonGKG7571146
2Máni Freyr VigfússonGK7474148
3Birgir Steinn Ottósson GR8273155
Frá vinstri: Ástrós Arnarsdóttir, íþróttastjóri GKG, Birgir Steinn, Björn Breki, Máni Freyr, Úlfar Jónsson mótsstjóri.

Úrslit í flokki 15-18 ára – stúlkur

Nafn Klúbbur 1. hr.2. hr.hr.Samtals
1Pamela Ósk HjaltadóttirGM817774232
2Fjóla Margrét ViðarsdóttirGS797776232
3Bryndís Eva ÁgústsdóttirGA827777236
Frá vinstri: Ástrós íþróttastjóri GKG, Bryndís Eva, Pamela Ósk og Fjóla Margrét.

Úrslit í flokki 15-18 ára – piltar

Nafn Klúbbur 1. hr.2. hr.hr.Samtals
1Guðjón Frans HalldórssonGKG757170216
2Veigar HeiðarssonGA717474219
3Skúli Gunnar ÁgústssonGK817571227
Frá vinstri: Úlfar Jónsson mótsstjóri, Veigar, Guðjón Frans, Skúli og Guðmundur Daníelsson þjálfari hjá GKG.