Pistlahöfundur:
  • 18.07.2024

Karen Sævarsdóttir sló fyrsta höggið á Íslandsmótinu í golfi 2024

Örn Ævar Hjartarson var kylfuberi í morgun þegar Karen Sævarsdóttir sló fyrsta höggið á Íslandsmótinu 2024. Mynd/seth@golf.is

Íslandsmótið i golfi 2024 hófst í morgun kl. 7:30 en mótinu lýkur sunnudaginn 21. júlí.
Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, setti mótið með formlegum hætti.

Karen Sævarsdóttir, áttfaldur Íslandsmeistari, sló fyrsta högg mótsins í veðurblíðunni á Hólmsvelli í Leiru í morgun. Karen hóf ferilinn í Golfklúbbi Suðurnesja en hún sigraði á Íslandsmótinu í golfi átta ár í röð og er hún sigursælasti keppandi Íslandsmótsins frá upphafi.

Guðfinna Sigurþórsdóttir, móðir Karenar, var einnig viðstödd þegar mótið var sett í morgun. Guðfinna er fyrsta konan sem sigraði á Íslandsmótinu í golfi en það gerði hún árið 1967 þegar fyrst var keppt um titilinn í kvennaflokki. Guðfinna sigraði alls þrisvar á Íslandsmótinu og eiga mæðgurnar því ellefu titla saman.

Örn Ævar Hjartarson, Íslandsmeistari í golfi 2001, var kylfuberi Karenar í morgun – en hann var kylfuberi hjá Karenu í sex skipti af þeim átta sem hún sigraði.

Hér er myndasyrpa frá því í morgun þegar upphafshöggið var slegið og Íslandsmótið var sett.

Guðfinna Sigurþórsdóttir og Karen Sævarsdóttir.
Örn Ævar Hjartarson og Karen Sævarsdóttir. Mynd/seth@golf.is

Örn Ævar Hjartarson. Mynd/seth@golf.is
Örn Ævar Hjartarson valdi réttu kylfuna en hann var sex sinnum kylfuberi þegar Karen Sævarsdóttir fagnaði Íslandsmeistaratitli. Mynd/seth@golf.is
Örn Ævar Hjartarson valdi réttu kylfuna en hann var sex sinnum kylfuberi þegar Karen Sævarsdóttir fagnaði Íslandsmeistaratitli. Mynd/seth@golf.is
Karen slær upphafshöggið, Guðfinna og Örn Ævar fylgjast spennt með. Mynd/seth@golf.is
Karen slær upphafshöggið, Guðfinna og Örn Ævar fylgjast spennt með. Mynd/seth@golf.is
Karen horfir hér á eftir upphafshögginu, Guðfinna og Örn Ævar fylgjast spennt með. Mynd/seth@golf.is
Örn Ævar Hjartarson, Hulda Bjarnadóttir forseti GSÍ og Karen Sævarsdóttir. Mynd/seth@golf.is