Pistlahöfundur:
  • 18.07.2024

Einar Bjarni sló draumahöggið á Íslandsmótinu í golfi

Einar Bjarni Helgason á 1. teig á Íslandsmótinu í golfi 2024. Mynd/seth@golf.is

Það eru frábærar aðstæður á Hólmsvelli í Leiru þar sem að Íslandsmótið í golfi hófst í morgun. Einar Bjarni Helgason úr Golfklúbbi Setbergs sló draumhöggið í morgun þegar hann fór holu í höggi á 9. braut (sem var áður sú 8.)

Einar Bjarni slói með 9 járni en holan var í 138 metra fjarlægð. Einar Bjarni lék áður fyrir Golfklúbb Fljótsdalshéraðs á Egilsstöðum en hann er fæddur árið 1998. Hann komst í undanúrslit á Íslandsmótinu í holukeppni nýverið.

#image_title
Einar Bjarni Helgason eftir draumahöggið á 9. braut í morgun.
Einar Bjarni Helgason á 1. teig á Íslandsmótinu í golfi 2024. Mynd/seth@golf.is