Pistlahöfundur:
  • 26.08.2024

Máni Freyr er Íslandsmeistari í holukeppni 2024 í strákaflokki 13-14 ára

Arnar Freyr Viðarsson, GA.

Íslandsmót unglinga 2024 í holukeppni fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 24.-26. ágúst.

Úrslitin réðust í dag, mánudaginn 26. ágúst.

Til úrslita í strákaflokki 13-14 ára léku Máni Freyr Vigfússon, GK og Björn Breki Halldórsson, GKG. Þar hafði Máni Freyr betur 2/0.

Arnar Freyr Viðarsson, GA, varð þriðji en hann sigraði Halldór Jónsson, GK í leiknum um bronsverðlaunin.

Öll úrslit úr þessum flokki eru hér fyrir neðan.


Smelltu hér fyrir úrslit leikja.

Frá vinstri: Björn Breki Halldórsson, GK, Máni Freyr Vigfússon, GK og Arnar Freyr Viðarsson, GA.