Pistlahöfundur:
  • 26.08.2024

Ásdís Rafnar er Íslandsmeistari í holukeppni 2024 í stúlknaflokki 15-16 ára

Frá vinstri: Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR og Erna Steina Eysteinsdóttir, GR.

Íslandsmót unglinga 2024 í holukeppni fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 24.-26. ágúst.

Úrslitin réðust í dag, mánudaginn 26. ágúst.

Til úrslita í stúlknaflokki 15-16 ára léku Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR og Erna Steina Eysteinsdóttir, GR. Þar hafði Ásdís betur 1/0.

Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, varð þriðja en hún sigraði Margréti Jónu Eysteinsdóttur, GR í leiknum um þriðja sætið, 1/0.

Öll úrslit úr þessum flokki eru hér fyrir neðan.

Smelltu hér fyrir úrslit leikja.

Frá vinstri: Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR og Erna Steina Eysteinsdóttir, GR.