Pistlahöfundur:
  • 26.08.2024

Veigar er Íslandsmeistari í holukeppni 2024 í piltaflokki 17-18 ára

Frá vinstri: Guðjón Frans Halldórsson, GKG, Veigar Heiðarsson, GA og Valur Snær Guðmundsson, GA.

Íslandsmót unglinga 2024 í holukeppni fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 24.-26. ágúst.

Úrslitin réðust í dag, mánudaginn 26. ágúst.

Til úrslita í piltaflokki 17-18 ára léku Veigar Heiðarsson, GA, og Valur Snær Guðmundsson, GA. Þar hafði Veigar betur 3/2.

Guðjón Frans Halldórsson, GKG og Skúli Gunnar Ágústsson, GK, léku um bronsverðlaunin þar sem að Guðjón Frans sigraði 2/1.

Öll úrslit úr þessum flokki eru hér fyrir neðan.

Frá vinstri: Guðjón Frans Halldórsson, GKG, Veigar Heiðarsson, GA og Valur Snær Guðmundsson, GA.

Smelltu hér fyrir úrslit leikja.