Pistlahöfundur:
  • 04.10.2024

Golfklúbbur Mosfellsbæjar keppir á Evrópumóti golfklúbba í Slóvakíu

Íslandsmeistaralið Golfklúbbs Mosfellsbæjar hóf keppni í gær á Evrópumóti golfklúbba í kvennaflokki.

Mótið fer fram á Welten vellinum í Slóvakíu.

Pamela Ósk Hjaltadóttir, Birna Rut Snorradóttir og Heiða Rakel Rafnsdóttir skipa lið GM og Katrín Dögg Hilmarsdóttir er liðstjóri og þjálfari.

GM var í 8. sæti af alls 16 liðum eftir fyrsta keppnisdaginn. Tvö bestu skorin telja í hverri umferð.
Heiðar Rakel lék á 75 höggum, Pamela Ósk á 81 höggi og Birna Rut lék á 84 höggum.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Pamela Ósk Hjaltadóttir, Birna Rut Snorradóttir og Heiða Rakel Rafnsdóttir skipa lið GM og Katrín Dögg Hilmarsdóttir er liðstjóri og þjálfari.
Pamela Ósk Hjaltadóttir á fyrsta keppnisdegi á EM golfklúbba. Mynd/EGA
Heiða Rakel Rafnsdóttir á fyrsta keppnisdegi á EM golfklúbba. Mynd/EGA
Birna Rut Snorradóttir á fyrsta keppnisdegi á EM golfklúbba. Mynd/EGA
Birna Rut Snorradóttir á fyrsta keppnisdegi á EM golfklúbba. Mynd/EGA