Pistlahöfundur:
  • 18.03.2025

Gunnlaugur Árni í toppbaráttunni í Kaliforníu

Mynd: LSU

Gunnlaugur Árni Sveinsson er í baráttunni um sigurinn í enn einu háskólamótinu í Bandaríkjunum eftir frábæra spilamennsku á fyrstu tveimur hringjunum í Pauma Valley Invitational í Kaliforníu í gær. 

Smelltu hér fyrir stöðuna:

Mótið er það sterkasta sem Gunnlaugur Árni hefur tekið þátt í á þessu skólaári en í mótinu eru sex af sjö bestu skólunum í efstu deild NCAA. 

Skólinn hans Gunnlaugs Árna, LSU, leiðir mótið fyrir lokahringinn en skólinn er í 7. sæti á þessu tímabili yfir besta árangur allra skóla.

Smelltu hér fyrir stöðuna í liðakeppninni:

Íslenski landsliðskylfingurinn úr GKG hefur náð frábærum árangri á þessu skólaári, hann hefur endað á meðal 25 efstu kylfinganna í öllum sjö mótunum sínum. Gunnlaugur Árni, sem er nýliði í háskólagolfinu, er í 12. sæti yfir bestu háskólakylfingana. Einungis fimm nýliðar eru á meðal 100 bestu háskólakylfingana. 

Grein Scoreboard um Gunnlaug Árna