Pistlahöfundur:
  • 02.06.2025

Unglingamótaröðin og Golf 14 - Síðasti skráningardagur í Nettó mót GKG

Skráningu í Nettó mót Unglingamótaraðarinnar og Golf 14 sem fara fram í Leirdalnum og Mýrinni lýkur í kvöld kl. 23:59.

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er framkvæmdaraðili mótsins.

Unglingamótaröðin

Mótið fer fram dagana 5.-7. júní í flokki 15-18 ára og leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar. Að loknum 36 holum skal leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. 

Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan

Upplýsingar og skráning

Golf 14 – Leirdalur

Mótið fer fram dagana 6.-7. júní

  • 14 ára og yngri 36 holur – leika 18 holur á föstudegi og 18 holur á laugardegi – Leirdalur

Golf 14 – Mýrin

 
Mótið fer fram þann 6. júní
 

  • 14 ára og yngri 9 holur – leika 9 holur á föstudegi – Mýrin
  • 12 ára og yngri 9 holur – leika 9 holur á föstudegi – Mýrin
  • 10 ára og yngri 9 holur – leika 9 holur á föstudegi – Mýrin

Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan

Skráning 18 holur
Skráning 9 holur