Pistlahöfundur:
  • 16.06.2025

Golfdagurinn vekur lukku

Golfdagurinn

Golfdagurinn á Egilsstöðum fór fram í gær sunnudaginn 15. júní hjá Golfklúbbi Fljótsdalshéraðs.

Boðið var upp á skemmtilega kynningu á grunnatriðum golfíþróttarinnar undir handleiðslu PGA golfkennara frá Golfklúbbi Fljótsdalshéraðs, ásamt leikjum og grillveislu fyrir þátttakendur. Um 30 kylfingar á öllum aldri mættu og skemmtu sér konunglega.

KPMG Golfdagurinn er fyrir alla fjölskylduna og frábært tækifæri til að kynnast golfíþróttinni!

https://youtube.com/shorts/tS0VgRhvBTc