Pistlahöfundur:
  • 20.06.2025

10 ára kylfingur fór holu í höggi á Íslandsmóti golfklúbba - myndband

Júlí Róbert eftir draumahöggið

Íslandsmót golfklúbba 12 ára og yngri var haldið á Landinu í Korpunni í gær.

Júlí Róbert Helgason, 10 ára kylfingur úr Nesklúbbnum gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 4. holu vallarins. Höggið var 113 metra langt og notaði Júlí Róbert 5 hybrid kylfinu. Samkvæmt heimildum er hann einn allra yngsti kylfingurinn til að fara holu í höggi á Íslandsmóti.

Fjórða brautin á Korpu – Landinu liggur í talsverðum upphalla og pinninn var á miðri flöt þennan daginn. Sleginn var lágur og þéttingsfastur bolti sem skoppaði fyrir framan flötina og stefndi til hægri í átt að flagginu.

Fljótt varð ljóst að höggið var efnilegt en vegna hæðarmismunar sást ekki þegar boltinn small ofan í. Félagar Júlís hlupu á undan inná flöt til að leita að boltum og þegar einn bolti sást ekki strax var ákveðið að kíkja ofan í og þar blasti hann við.

Mikil fagnaðarlæti brutust út hjá öllum viðstöddum og það voru tilfinningarík skref að holu áður en boltinn var tekinn uppúr. Það voru nokkur gleðitár sem féllu á þessu frábæra augnabliki, sjón er sögu ríkari.

Mótið heldur áfram í Bakkakoti í dag og lýkur síðan á laugardaginn hjá GKG í Mýrinni.