Pistlahöfundur:
  • 07.07.2025

Golfdagurinn á Sauðárkróki fer fram sunnudaginn 13. júlí

Golfdagurinn á Sauðárkróki fer fram sunnudaginn 13. júlí í Golfklúbbi Skagafjarðar.

Boðið verður upp á skemmtilega kynningu á grunnatriðum golfíþróttarinnar undir handleiðslu PGA golfkennara, ásamt leikjum og grillveislu fyrir þátttakendur. Golfdagurinn er fyrir alla fjölskylduna en hér er frábært tækifæri til að kynnast golfíþróttinni!

🗓️13. júlí

🕐13:00-15:00

📍Golfklúbbur Skagafjarðar

 

Golfdagurinn er samstarfsverkefni GSÍ, KPMG, PGA og GSS.