Pistlahöfundur:
  • 26.07.2025

Golfklúbbur Reykjavíkur er Íslandsmeistari golfklúbba 2025 - 1. deild karla

Íslandsmót golfklúbba í 1. deild karla fór fram á Leirdalsvelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar dagana 24.-26. júlí 2025.

Smelltu hér til að sjá úrslit allra leikja:

Heimalið GKG mætti GR í úrslitum mótsins. Bæði lið léku frábært golf í mótinu, en GR stóð uppi sem sigurvegari eftir 3-2 sigur í úrslitum. 

Þetta er í 26. skipti sem GR sigrar í efstu deild Íslandsmóts golfklúbba. 

Golfklúbburinn Keilir sótti þriðja sætið eftir 4-1 sigur gegn Golfklúbbi Akureyrar.

Alls kepptu átta lið um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2025.

Liðunum átta var skipt upp í tvo fjögurra liða riðla, þar sem efstu tvö liðin úr hvorum riðli færu áfram í undanúrslit. Neðsta liðið fellur um deild, og leikur í 2. deild að ári.

A-riðill:

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fór auðveldlega í gegnum riðilinn, og endaði með 14.5 vinninga af 15 mögulegum. 

Golfklúbbur Akureyrar hafnaði í öðru sæti riðilsins og komst því áfram í undanúrslitin. 

Golfklúbbur Selfoss endaði í þriðja sæti og Golfklúbbur Vestmannaeyja í því fjórða.

B-riðill:

Í B-riðli var hart barist um sæti í undanúrslitum. Golfklúbbur Reykjavíkur vann alla sína leiki í spennandi viðureignum. 

Hin liðin deildu með sér sigrum. GK, GS og GM sigruðu hvert einn leik í riðlinum, og því var það liðið með flesta innbyrðis sigra sem komst áfram í undanúrslitin. 5-0 sigur Keilis á Suðurnesjunum reyndist þar dýrmætur, og þeir á leið í undanúrslitin gegn GKG.

Undanúrslit:

GKG sigraði sveit GK í fyrri undanúrslitaleiknum, 3.5-1.5. 

GR sigraði GA í seinni undanúrslitaleiknum, 3.5-1.5

Úrslit:

Sveitir GKG og GR mættust í úrslitaleiknum. Leikurinn spilaðist jafn frá upphafi, og stefndi í að fyrri fjórmennings leikurinn myndi skera úr um sigurvegara mótsins. Þar léku Dagbjartur Sigurbrandsson og Jóhann Frank Halldórsson saman fyrir sveit GR og Róbert Leó Arnórsson og Kristófer Orri Þórðarson fyrir GKG. Dagbjartur og Jóhann leiddu með tveimur þegar fjórar voru eftir. Kristófer og Róbert náðu að minnka muninn, en það reyndist ekki nóg. GR sigraði leikinn 1/0, og einvígið í heild sinni 3-2. GR eru því Íslandsmeistarar golfklúbba!

Lokastaðan: 

1. Golfklúbbur Reykjavíkur
2. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 
3. Golfklúbburinn Keilir 
4. Golfklúbbur Akureyrar 
5. Golfklúbbur Mosfellsbæjar
6. Golfklúbbur Suðurnesja
7. Golfklúbbur Selfoss
8. Golfklúbbur Vestmannaeyja*

*Golfklúbbur Vestmannaeyja fellur niður um deild

Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í karlaflokki árið 1961.

Frá þeim tíma hafa 6 klúbbar fagnað þessum titli.

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur sigrað oftast eða 26 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 15 titla,  Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er með 9, Golfklúbbur Akureyrar er með 8 titla, Golfklúbbur Suðurnesja 3, og Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 4 titla, þar af 2 þegar klúbburinn var Golfklúbburinn Kjölur.

Íslandsmeistarar – Golfklúbbur Reykjavíkur
2. sæti – Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
3. sæti – Golfklúbburinn Keilir

 

Íslandsmót golfklúbba GSÍ – Íslandsmeistarar frá upphafi

Karlaflokkur:

1961 Golfklúbbur Akureyrar
1962 Golfklúbbur Akureyrar
1963 Golfklúbbur Akureyrar
1964 Golfklúbbur Akureyrar
1965 Golfklúbbur Akureyrar
1966 Golfklúbbur Akureyrar
1967 Golfklúbbur Reykjavíkur
1968 Golfklúbbur Reykjavíkur
1969 Golfklúbbur Reykjavíkur
1970 Golfklúbbur Reykjavíkur
1971 Golfklúbbur Akureyrar
1972 Golfklúbbur Reykjavíkur
1973 Golfklúbbur Suðurnesja
1974 Golfklúbburinn Keilir
1975 Golfklúbbur Reykjavíkur
1976 Golfklúbbur Reykjavíkur
1977 Golfklúbburinn Keilir
1978 Golfklúbburinn Keilir
1979 Golfklúbbur Reykjavíkur
1980 Golfklúbbur Reykjavíkur
1981 Golfklúbbur Reykjavíkur
1982 Golfklúbbur Suðurnesja
1983 Golfklúbbur Reykjavíkur
1984 Golfklúbbur Reykjavíkur
1985 Golfklúbbur Reykjavíkur
1986 Golfklúbbur Reykjavíkur
1987 Golfklúbbur Reykjavíkur
1988 Golfklúbburinn Keilir
1989 Golfklúbburinn Keilir
1990 Golfklúbburinn Keilir
1991 Golfklúbburinn Keilir
1992 Golfklúbbur Reykjavíkur
1993 Golfklúbburinn Keilir
1994 Golfklúbbur Reykjavíkur
1995 Golfklúbburinn Keilir
1996 Golfklúbbur Suðurnesja
1997 Golfkúbbur Reykjavíkur
1998 Golfklúbbur Akureyrar
1999 Golfklúbbur Reykjavíkur
2000 Golfklúbburinn Keilir
2001 Golfklúbbur Reykjavíkur
2002 Golfklúbbur Reykjavíkur
2003 Golfklúbbur Reykjavíkur
2004 Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2005 Golfklúbburinn Kjölur
2006 Golfklúbburinn Kjölur
2007 Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2008 Golfklúbburinn Keilir
2009 Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2010 Golfklúbbur Reykjavíkur
2011 Golfklúbbur Reykjavíkur
2012 Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2013 Golfklúbburinn Keilir
2014 Golfklúbburinn Keilir
2015 Golfklúbbur Mosfellsbæjar
2016 Golfklúbburinn Keilir
2017 Golklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2018 Golfklúbburinn Keilir
2019 Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2020 Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2021 Golfklúbbur Reykjavíkur
2022 Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2023 Golfklúbbur Mosfellsbæjar
2024 Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar

Fjöldi titla:

Golfklúbbur Reykjavíkur (26)
Golfklúbburinn Keilir (15)
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (9)
Golfklúbbur Akureyrar (8)
Golfklúbbur Suðurnesja (3)
Golfklúbburinn Kjölur (2)
Golfklúbbur Mosfellsbæjar (2)