Pistlahöfundur:
  • 24.08.2025

Íslandsmót golfklúbba 2025 - GR Íslandsmeistari í 1. deild karla +50

Íslandsmót golfklúbba 2025 í 1. deild karla 50 ára og eldri fór fram á Hólmsvelli Golfklúbbs Suðurnesja dagana 21.-23. ágúst.

Golfklúbbur Reykjavíkur er Íslandsmeistari í 1. deild karla +50 eftir ótrúlegan úrslitaleik þar sem tveir leikir fóru í bráðabana. Sveit GR vann þá báða og tryggði sér titilinn með 3-2 sigri á sveit Setbergs í úrslitaleiknum.

Lokastaðan í 1. deild karla +50.

  1. Golfklúbbur Reykjavíkur
  2. Golfklúbbur Setbergs
  3. Golfklúbburinn Esja
  4. Golfklúbbur Akureyrar
  5. Golfklúbbur Suðurnesja
  6. Golfklúbburinn Leynir
  7. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  8. Golfklúbburinn Keilir*


*GK fellur í 2. deild

Smelltu hér fyrir úrslit í 1. deild karla +50