Pistlahöfundur:
  • 02.10.2025

Golfklúbburinn Keilir hefur leik á EM golfklúbba

Evrópumót golfklúbba í kvennaflokki hófst í dag. Mótið fer fram á Green Resort Hrubá Borša golfvellinum í Slóvakíu dagana 2.-4. október.

Golfklúbburinn Keilir varð Íslandsmeistari golfklúbba 2025 eftir ótrúlegan úrslitaleik fyrr í sumar, og vann sér með því þátttökurétt í mótinu. Alls eru 19 golfklúbbar skráðir til leiks.

Þrír leikmenn eru í hverju liði. Keppt er í höggleik og tvö bestu skorin telja í hverri umferð, en leiknar verða 54 holur í mótinu.

Elva María Jónsdóttir, Anna Sólveig Snorradóttir og Fjóla Margrét Viðarsdóttir skipa lið GK. Guðrún Brá Björgvinsdóttir er einnig á staðnum sem þjálfari og liðsstjóri, en hún var einnig í sigursveit GK í sumar. Einungis áhugakylfingar geta tekið þátt í mótinu.

Smelltu hér fyrir stöðu mótsins

Íslandsmeistararnir