Pistlahöfundur:
  • 05.03.2026

Iceland Golf Expo um helgina

Iceland Golf Expo 2026 fer fram í Laugardalshöll dagana 7.-8. mars næstkomandi.

Markmið sýningarinnar er að sameina fyrirtæki, golfklúbba og aðra aðila í golfhreyfingunni á Íslandi á einum vettvangi til að kynna vörur, þjónustu og nýjungar, auk þess að efla tengslanet og styrkja ímynd golfsins sem fjölbreyttrar og ört vaxandi íþróttar.

Hægt er að kaupa miða á sýninguna hér

Fyrirtæki fá tækifæri til að kynna vörur sínar og þjónustu beint fyrir markhóp sem hefur ríkan áhuga á golfi, ferðaþjónustu og afþreyingu, auk þess sem sýningin laðar að sér fjölda fagaðila, áhugafólk og lykilaðila innan greinarinnar.

Gert er ráð fyrir 12–15 þúsund gestum á sýninguna, og verður þar eitthvað fyrir alla. Golfhermar, golfferðir og margt fleira.

Á sýningunni má m.a. finna:

  • Íslandshótel
  • Golfsamband Íslands
  • 66 Norður
  • Golfskálann
  • Garmin
  • Ölgerðina
  • Golfbúðina Hafnarfirði
  • J. Lindeberg
  • Elva Golf
  • o.fl.

Hægt er að nálgast uppröðun bása á heimasíðu Iceland Golf Expo

Frá Fit & Run

Sara Jónsdóttir  – sara@vistaexpo.is
Ómar Már Jónsson – omar@vistaexpo.is
Björgvin Þór Rúnarsson – bo@vidburdafelagid.is