Pistlahöfundur:
  • 09.02.2026

Haraldur Franklín í 39. sæti á Circa Open

Mynd - Luke Walker

Íslenski atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús endaði jafn í 39. sæti CIRCA Cape Town Open mótsins í Suður-Afríku. Mótið var annað mót tímabilsins á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næst sterkasta í Evrópu.

Haraldur byrjaði mótið af krafti og var á meðal átta efstu eftir fyrstu tvo hringina. Hann lék þá báða á fjórum höggum undir pari. Þriðja hringinn lék Haraldur á pari vallarins og hélt sér í toppbaráttunni.

Síðasti hringur mótsins reyndist erfiður, en Haraldur kom í hús á 75 höggum, þremur yfir pari og endaði mótið jafn í 39. sætinu. Englendingurinn Will Enefer stóð uppi sem sigurvegari mótsins á fjórtán höggum undir pari.

Hringir Haralds

Þetta var annað mót Haralds í Suður-Afríku af fjórum, en næsta verkefni verður NTT Data Pro-Am, sem hefst á fimmtudaginn.

Hér má sjá úrslit mótsins