Pistlahöfundur:
  • 19.02.2026

Golfsamband Íslands auglýsir starf aðstoðarafreksstjóra

Golfsamband Íslands (GSÍ) leitar að aðstoðarafreksstjóra til starfa frá 1. apríl 2026.

Verkefni aðstoðarafreksstjóra eru á sviði afrekssviðs GSÍ og snúa að landsliðum Íslands, afreksstarfi unglinga og stuðningi við leikmenn í eða á leið í atvinnumennsku.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Vinna að framþróun afreksstarfs GSÍ
  • Samstarf við golfklúbba um þróun afreksmála
  • Þróa og fylgja eftir afreksstefnu GSÍ
  • Samstarf við afrekskylfinga um heildstæða þróun leikmanna

Hæfniskröfur

  • Alþjóðleg reynsla af afreksgolfi
  • Reynsla af þjálfun afrekskylfinga
  • Vilji og dugnaður til að þróa afreksgolf á Íslandi
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð

Umsókn, ásamt ferilskrá, þarf að berast til GSÍ eigi síðar en 1. mars 2026 og skulu þær sendar á neðangreint netfang.

Upplýsingar um starfið veitir:

Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri
brynjar@golf.is