Pistlahöfundur:
  • 11.03.2026

Frábær byrjun hjá Huldu Clöru í Suður-Afríku

Hulda Clara

Hulda Clara Gestsdóttir lék fyrsta hringinn á 69 höggum eða þremur höggum undir pari vallar á Jabra Ladies Classic mótinu á Sunshine atvinnumannamótaröðinni í Suður-Afríku. Mótið fer fram á Killarney CC golfvellinum í Jóhannesarborg. 

Hulda Clara fór rólega af stað og var á einu höggi yfir pari á fyrri 9 holunum en lék frábærlega á seinni 9 þar sem hún fékk fjóra fugla og fimm pör. Hulda Clara er jöfn í 2. sæti ásamt fjórum öðrum kylfingum og er tveimur höggum á eftir forystunni. 

Andrea Bergsdóttir lék á 75 höggum í dag og Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék á 76 höggum. 

Staðan í mótinu