Pistlahöfundur:
  • 14.04.2026

Heiða Rakel sigrar á sínu fyrsta háskólamóti

Frábær byrjun á háskólaferlinum

Heiða Rakel Rafnsdóttir, Golfklúbbi Mosfellsbæjar, sigrar á sínu fyrsta háskólamóti fyrir Grand Valley State University skólann í Bandaríkjunum.

Heiða var á meðal keppenda á UMSL Spring Invitational mótinu sem fór fram á Norwood Hills CC – East vellinum dagana 12.-13. apríl. Heiða endaði samtals á einu höggi undir pari í mótinu. Eftir frábæran fyrsta hring upp á þrjú högg undir par leiddi Heiða mótið með þremur höggum og hélt efsta sætinu allt til enda.

Heiða lék hringina þrjá á 68-75-69 höggum og varð einu höggi á undan Kamryn Shannon úr Ferris State.

Hringir Heiðu

Lið Heiðu í Grand Valley State University vann einnig liðakeppni mótsins með 7 högga mun eða á 23 höggum yfir pari samtals.

Flottur árangur hjá Heiðu Rakel í bandaríska háskólagolfinu. Óskum henni til hamingju með árangurinn

Hér má sjá úrslit mótsins