Pistlahöfundur:
  • 17.04.2026

Fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar verður haldið í Þorlákshöfn

Aerial view of a coastal golf course with greens and bunkers, the sea on the horizon and a red 'UNGLINGA MÓTARÖDIN' logo in the sky.

Fyrsta mót Unglingamótaraðar Golfsambands Íslands, sem átti upphaflega að fara fram dagana 23.–24. maí en var aflýst, hefur nú verið sett aftur á dagskrá.

Golfsamband Íslands hefur þegið boð stjórnar Golfklúbbs Þorlákshafnar um að taka mótið að sér og fer það fram á Þorláksvelli dagana 23.-25. maí, yfir Hvítasunnuhelgina. Leiknar verða 54 holur á keppnisdögunum þremur.

Með þessu tryggir GÞ að unglingar landsins fái tækifæri til að hefja keppnistímabil sitt sem fyrst, en mótaröðin er mikilvægur vettvangur fyrir okkar efnilegu kylfinga.

Golfsamband Íslands er þakklátt Golfklúbbi Þorlákshafnar fyrir að leysa þetta mikilvæga mál. Hér að neðan má sjá dagskrá Unglingamótaraðarinnar í sumar.

Dagskrá Unglingamótaraðarinnar 2026