Pistlahöfundur:
  • 27.04.2026

Hvaða kylfingar leika til úrslita í Landsmótinu í golfhermum?

Split-background image showing a woman golfer swinging on the left and a man standing with arms folded on the right, with a shield logo reading Landsmót í Golfheimum centered above a laurel motif.
Heiðrún og Axel eru á toppnum í annarri umferð.

Annarri umferð Landsmótsins í golfhermum 2026 lýkur í dag, en frábær skor hafa sést í mótinu hingað til. Mikill fjöldi þátttakenda var skráður í mótið í ár, en 268 kylfingar hófu leik og komust efstu 48 karlarnir og efstu 24 konurnar áfram úr fyrstu umferð.

Leiknar eru 36 holur á Korpúlfsstaðavelli í annarri umferð, en þar verður Íslandsmótið í golfi leikið í sumar.

Í karlaflokki er Axel Bóasson á toppnum með skor upp á sautján högg undir par. Hann lék fyrri hringinn á ótrúlegum 60 höggum, og fylgdi því eftir með hring upp á 65 högg.

Sigurður Arnar Garðarsson er annar á fimmtán höggum undir pari.

Staða karlaflokksins

Sem stendur hafa þrettán kylfingar lokið leik á níu undir pari eða betur. Enn eiga þó nokkrir af kylfingunum 48 eftir að klára sína hringi.

Efstu tólf kylfingar mótsins komast áfram úr annarri umferð í úrslitakeppnina. Úrslitakeppnin fer fram laugardaginn 2. maí í Íþróttamiðstöð GKG. Leiknar eru þar 36 holur til úrslita um titilinn Landsmeistari í golfhermum, og telur skor undankeppnanna ekki með í úrslitunum. Beint streymi verður frá mótinu líkt og áður.

Hér má sjá stöðuna í karlaflokknum

Heiðrún Anna Hlynsdóttir, ríkjandi stigameistari GSÍ mótaraðarinnar er í efsta sæti kvennaflokksins. Hún lék hringina tvo á ellefu höggum undir pari og endaði einu höggi á undan þeim Pamelu Ósk Hjaltadóttur og Evu Kristinsdóttur. Allar eru þær öruggar inn í úrslitakeppnina þar sem einungis einn keppandi á eftir að hefja leik.

Staða kvennaflokksins

Golfklúbbur Selfoss á þrjá keppendur í efstu átta sætum kvennaflokksins sem og einn í karlaflokki. Enginn klúbbur á fleiri kylfinga á meðal efstu átta í hvorum flokknum, en GKG á þar einnig fjóra kylfinga.

Hér má sjá stöðuna í kvennaflokknum