Pistlahöfundur:
  • 03.05.2026

Dagbjartur, Jóhann og Guðrún ekki áfram í mótum vikunnar

Blurred outdoor scene with two golf logos side by side, separated by a thin white divider line; left logo features a stylized golfer and vertical text, right logo reads Nordic Golf League inside a circular emblem.

Dagbjartur Sigurbrandsson, Jóhann Frank Halldórsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir léku öll í alþjóðlegum atvinnumótum í vikunni.

Dagbjartur og Jóhann Frank, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, voru á meðal keppenda á Big Green Egg Blekinge Open mótinu á Nordic Golf League mótaröðinni. Leikið var á Trummenäs GK í Blekinge, Svíþjóð.

Dagbjartur og Jóhann

Jóhann lék hringi sína á 75-82 höggum og lauk leik á fimmtán höggum yfir pari í heildina.

Dagbjartur endaði höggi frá niðurskurðarlínunni, en hann lék hringina tvo á 72-69, og lauk leik á einu höggi undir pari. Dagbjartur endaði jafn í 49. sæti mótsins, en 48 kylfingar náðu í gegnum niðurskurð.

Hér má sjá úrslit mótsins

Dagbjartur lék flott golf

Guðrún Brá var á meðal keppenda þegar LET mótaröðin heimsótti Máritíus í fyrsta skiptið.

MCB Ladies Classic mótið fór fram dagana 1.-3. maí og lauk í dag, en Íslandsmeistarinn náði ekki í gegnum niðurskurð mótsins.

Guðrún lék fyrri hring sinn á 77 höggum, fimm yfir pari, og þann seinni á 76 höggum. Hún lauk leik á níu höggum yfir pari, jöfn í 110. sætinu.

Hér má sjá úrslit mótsins

Guðrún Brá