Pistlahöfundur:
  • 21.05.2026

Gunnlaugur kominn áfram í úrslit háskólagolfsins

Golfer in light blue polo and cap mid-swing on a lush course, with tournament logo in the top-right corner and sponsor logos at the bottom.
Gunnlaugur Árni Sveinsson

Gunnlaugur Árni Sveinsson og lið hans úr LSU háskólanum höfnuðu í þriðja sæti NCAA svæðismóts sem fram fór í Arizona dagana 18.-20. maí. Með árangrinum tryggði lið LSU sig inn í úrslitamót bandaríska háskólagolfsins sem fer fram í Kaliforníu dagana 29. maí-3. júní.

Þetta er í annað skiptið á síðustu sex árunum sem LSU kemst í úrslitamótið, og í fyrsta skiptið sem Gunnlaugur fær tækifæri til að leika þar.

Gunnlaugur lék hringi mótsins á 74-75-69 höggum og endaði jafn í 43. sæti einstaklingskeppninnar á tveimur höggum yfir pari. Tveir liðsfélagar Gunnlaugs voru á meðal sex efstu kylfinga mótsins, og LSU liðið í góðum málum frá fyrsta degi.

Gunnlaugur átti góðan lokahring

Hér má sjá úrslit mótsins

Gunnlaugur Árni hefur verið lykilmaður í liði LSU á tímabilinu. Landsliðskylfingurinn sigraði m.a. á Fallen Oak Invitational mótinu og varð best áttundi á heimslista áhugakylfinga.

Úrslitamótið verður leikið á norðurvelli Omni La Costa Resort & Spa í Carlsbad, Kaliforníu. Þangað mæta 30 sterkustu lið landsins og leika um NCAA meistaratitilinn.

Omni La Costa Resort & Spa