Pistlahöfundur:
  • 23.05.2026

Frábær skor á fyrsta keppnisdegi Unglingamótaraðarinnar

Aerial view of a coastal golf course with greens and bunkers, the sea on the horizon and a red 'UNGLINGA MÓTARÖDIN' logo in the sky.

Fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar hófst í Þorlákshöfn í dag. Leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar í flokki 15-18 ára pilta og stúlkna. Að 36 holum liðnum er niðurskurður, þar sem efstu 70% kylfinga halda áfram og leika lokahringinn. Fullt er í mótið, en alls tekur 81 keppandi þátt, 25 í stúlknaflokki og 56 í piltaflokki.

Frábær skor sáust á fyrsta keppnisdegi, en sjö kylfingar léku Þorláksvöll undir pari.

Piltaflokkinn leiðir Kristján Karl Guðjónsson, GM, en hann lék á 65 höggum, sjö undir pari vallarins. Frábær hringur hjá Kristjáni, sem fékk einn örn, sex fugla og einn skolla í dag.

Hringur Kristjáns

Höggi á eftir Kristjáni er Máni Freyr Vigfússon, GK, á sex höggum undir pari. Máni fékk einn örn, sjö fugla, einn skolla og einn tvöfaldan skolla á hring dagsins.

Hringur Mána

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG, leiðir stúlknaflokkinn, en hún lék á 69 höggum í dag. Pamela fékk fimm fugla og tvo skolla á hringnum og leiðir mótið með tveimur höggum. Pamela er forgjafarlægsti kylfingur stúlknaflokksins, en hún var í verðlaunasæti í öllum sex mótunum sem hún lék í síðasta sumar.

Hringur Pamelu

Á eftir Pamelu er Tinna Alexía Harðardóttir, GK. Hún lék fyrsta hringinn á einu höggi undir pari, fékk fjóra fugla og þrjá skolla. Frábær hringur hjá Tinnu, sem fær 40 punkta fyrir vikið.

Hringur Tinnu

Golfklúbburinn Keilir á flesta keppendur í mótinu eða 20 talsins. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar kemur þar á eftir með 18 keppendur og Golfklúbbur Reykjavíkur með 13.

Hér má sjá rástíma og stöðu mótsins

GolfklúbburFjöldi keppenda
Golfklúbburinn Keilir20
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar18
Golfklúbbur Reykjavíkur13
Golfklúbbur Akureyrar9
Nesklúbburinn5
Golfklúbburinn Leynir4
Golfklúbbur Mosfellsbæjar4
Golfklúbburinn Setberg2
Golfklúbbur Hveragerðis2
Golfklúbburinn Hamar Dalvík2
Golfklúbbur Skagafjarðar1
Golfklúbbur Suðurnesja1
Samtals81