Pistlahöfundur:
  • 24.05.2026

Kristján Karl fimmtán undir pari fyrir lokahring Unglingamótaraðarinnar

Aerial view of a coastal golf course with greens and bunkers, the sea on the horizon and a red 'UNGLINGA MÓTARÖDIN' logo in the sky.

Fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar fer fram í Þorlákshöfn dagana 23.-25. maí. Leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar í flokki 15-18 ára pilta og stúlkna. Að 36 holum liðnum er niðurskurður, þar sem efstu 70% kylfinga halda áfram og leika lokahringinn. Fullt er í mótið, en alls tekur 81 keppandi þátt, 25 í stúlknaflokki og 56 í piltaflokki.

Kristján Karl Guðjónsson, GM, leiðir piltaflokkinn með sjö höggum fyrir lokahringinn, en hann er fimmtán undir pari eftir fyrstu tvo keppnisdagana. Kristján lék fyrsta hringinn á 65 höggum, sjö undir pari vallarins. Hann bætti sig um eitt högg á milli hringja og kom í hús á 64 höggum í dag, átta undir pari. Kristján getur með góðum lokahring bætt lægsta skor mótaraðarinnar, sem Gunnar Þór Heimisson sló í fyrra þegar hann lék á sautján undir pari í Sandgerði.

Tveir ernir, þrettán fuglar og tveir skollar

Hjalti Kristján Hjaltason er annar á átta undir pari, en hann hefur leikið báða hringina á 68 höggum.

Óliver Elí Björnsson átti stærsta stökkið á milli hringja, en hann fór upp um 20 sæti og bætti sig um 14 högg. Hann lék á 79 höggum í gær og 65 höggum í dag, þegar landsliðskylfingurinn sótti þrjá erni á par 5 holum Þorláksvallar.

Óliver lék vel í dag

Golfklúbbur Akureyrar á tvo efstu kylfinga stúlknaflokksins.

Bryndís Eva Ágústsdóttir leiðir mótið á einu höggi undir pari. Hún hefur leikið hringi sína á 73 og 70 höggum og heldur áfram góðu gengi sínu á mótaröðinni. Bryndís lék í sjö mótum síðasta sumar, vann fimm og varð tvívegis í öðru sæti.

Hringir Bryndísar

Höggi á eftir Bryndísi er klúbbfélagi hennar, Lilja Maren Jónsdóttir. Hún lék frábært golf í dag og kom í hús á 67 höggum, fimm undir pari vallarins. Lilja fékk sjö fugla á hringnum í dag og hefur fengið þremur fleiri fugla en næsti kylfingur í stúlknaflokki mótsins.

Tíu högga bæting Lilju

Golfklúbburinn Keilir á flesta keppendur í mótinu eða 20 talsins. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar kemur þar á eftir með 18 keppendur og Golfklúbbur Reykjavíkur með 13.

Hér má sjá rástíma og stöðu mótsins

GolfklúbburFjöldi keppenda
Golfklúbburinn Keilir20
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar18
Golfklúbbur Reykjavíkur13
Golfklúbbur Akureyrar9
Nesklúbburinn5
Golfklúbburinn Leynir4
Golfklúbbur Mosfellsbæjar4
Golfklúbburinn Setberg2
Golfklúbbur Hveragerðis2
Golfklúbburinn Hamar Dalvík2
Golfklúbbur Skagafjarðar1
Golfklúbbur Suðurnesja1
Samtals81