Pistlahöfundur:
  • 26.05.2026

Golfdagurinn á Vestfjörðum fer fram sunnudaginn 31. maí

Golfdagarnir hafa verið vinsælir undanfarin ár

Golfdagurinn á Vestfjörðum fer fram sunnudaginn 31. maí!

Dagurinn verður tvískiptur:

kl. 12:00 hefst dagskrá á íþróttasvæðinu á Patreksfirði
kl. 15:00 hefst dagskrá á golfvellinum í Bíldudal

Boðið verður upp á skemmtilega kynningu á grunnatriðum golfíþróttarinnar undir handleiðslu PGA golfkennara, ásamt leikjum og grillveislu fyrir þátttakendur á báðum stöðum. Golfdagurinn er fyrir alla fjölskylduna en hér er frábært tækifæri til að kynnast golfíþróttinni!

🗓️31. maí

🕐12:00/15:00

📍Íþróttasvæði Patreksfjarðar & Golfklúbbur Bíldudals

Hvetjum alla sem hafa áhuga til að mæta

Golfdagurinn er samstarfsverkefni GSÍ, KPMG, PGA, GP og GBB.