Pistlahöfundur:
  • 29.05.2026

GSÍ mótaröðin í Þorlákshöfn - Skráningu lýkur þann 1. júní

Aerial view of a coastal golf course with blue sky and sea, large white Icelandic text 'SKRÁNING ER HAFIN' over the green, 'PORLÁKSVÖLLUR 6-7 JUNÍ' below, and a logo in the top-right corner.

GSÍ mótaröðin ferðast til Þorlákshafnar dagana 6.-7. júní.

Mótið er þriðja mótið á GSÍ mótaröðinni í ár þar sem bestu kylfingar landsins etja kappi. Skráning er hafin, en síðasti skráningardagur er mánudagurinn 1. júní kl. 23:59.

 

Smelltu hér til að skrá þig

 

Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 132 en að lágmarki 33 kylfingur fær þátttökurétt í hvorum flokki. 

Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5.

Leikinn er höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 36 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Eftir 36 holu leik skal leikmönnum fækkað þannig að þau 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir halda áfram.

Veitt verða peningaverðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla og kvenna.

Allar upplýsingar og skráningu má finna hér