Pistlahöfundur:
  • 07.06.2026

Böðvar og Eva efst fyrir lokahringinn

Aerial view of a coastal golf course with green fairways and water hazards, overlaid with event logos and dates in Icelandic text.
Þorláksvöllur - mynd Edwin Roald

Powerade-mót Golfklúbbs Þorlákshafnar hófst laugardaginn 6. júní á Þorláksvelli. Leiknar eru 54 holur á tveimur keppnisdögum, þar sem 36 holur voru leiknar í dag og 18 holur á morgun, sunnudag.

Smelltu hér fyrir rástíma og stöðuna

Aron Snær Júlíusson, GKG, leiddi karlaflokkinn eftir fyrri átján holur dagsins. Hann lék þær á 66 höggum og fékk m.a. sjö fugla og einn örn.

Böðvar Bragi Pálsson, GR, var annar eftir fyrsta hringinn, en er nú efstur eftir frábæran seinni hring. Böðvar lék hringi sína á 67 og 65 höggum og er tólf undir pari fyrir lokahringinn. Aron Snær lék seinni hring dagsins á 67 höggum og er því höggi á eftir Böðvari.

Hákon Örn Magnússon, GR, og Veigar Heiðarsson, GA, eru jafnir í þriðja sæti á átta höggum undir pari.

Staðan í karlaflokki

Karen Lind Stefánsdóttir, GKG, var efst í kvennaflokki eftir fyrri átján holurnar, en hún lék þær á pari vallarins.

Eva Kristinsdóttir, GM, lék seinni hring dagsins á fjórum höggum undir pari, fékk sjö fugla, þrjá skolla og stökk upp í fyrsta sætið fyrir lokahringinn. Frábær hringur hjá Evu sem leiðir með tveimur höggum.

Karen Lind er önnur á einu höggi undir pari og Elsa Maren situr í þriðja sætinu á einu höggi yfir pari.

Staða kvennaflokksins

Lokahringurinn hefst í fyrramálið. Sjáumst þar!