Pistlahöfundur:
  • 17.06.2026

Íslensku kylfingarnir hafa lokið leik á Opna breska áhugamannamótinu

Three male golfers stand together in front of a large blue archway sign for the R&A The Amateur Championship at a golf course.
Veigar, Tómas og Aron

Þrír íslenskir kylfingar voru á meðal keppenda á Opna breska áhugamannamótinu (The Amateur Championship). Mótið fer fram dagana 15.-20. júní á tveimur völlum í Englandi: Royal Liverpool og West Lancashire. Þar mætast 288 áhugakylfingar í einu sterkasta áhugamannamóti ársins.

Á fyrstu tveimur hringjum mótsins er leikinn höggleikur. Allir kylfingar leika 18 holur á hvorum vellinum. Eftir þessa fyrstu tvo hringi komast 64 efstu kylfingarnir áfram í útsláttarhluta mótsins.

Hér má sjá úrslit höggleiksins

Íslensku kylfingarnir voru Aron Emil Gunnarsson, Tómas Eiríksson Hjaltested og Veigar Heiðarsson. Enginn þeirra náði í gegnum niðurskurð, en Veigar fór í bráðabana um laust sæti í útsláttarhlutanum en náði ekki inn.

Veigar lék hringina tvo á 73 og 69 höggum, og mótið í heild sinni á tveimur höggum undir pari. Hann endaði jafn í 55. sæti höggleiksins og þurfti því í bráðabana ásamt tuttugu öðrum kylfingum um tíu laus sæti í holukeppninni. Þar komst hann ekki í gegn og móti hans því lokið.

Hringir Veigars

Aron Emil lék hringi sína á 76 og 71 höggi og endaði jafn í 159. sæti á þremur höggum yfir pari.

Hringir Arons

Tómas endaði jafn í 274. sæti á þrettán höggum yfir pari. Tómas lék seinni hringinn vel en skollar á fyrri hringnum reyndust honum dýrir.

84, 73