Pistlahöfundur:
  • 12.07.2026

Íslandsmót eldri kylfinga 2026 - síðasti skráningardagur

Five adults stand outdoors on a grassy field, each holding a trophy and a bouquet, posing for a victory photo with blue banners in the background.

Íslandsmót eldri kylfinga 2026 fer fram á Kiðjabergsvelli dagana 16.-18. júlí. Golfsamband Íslands er framkvæmdaraðili mótsins. 

Skráning í mótið er í fullum gangi, en síðasti skráningardagur er sunnudagurinn 12. júlí kl 23:59.

Mótið hefur lengi verið einn skemmtilegasti viðburður ársins. Leikinn er 54 holu höggleikur um Íslandsmeistaratitla í flokkum 50+ og 65+ karla og kvenna.

Í mótsgjaldinu er innifalinn einn æfingahringur og lokahóf í umsjá GKB þar sem verðlaun verða afhent fyrir 1.-3. sæti í öllum flokkum. Mótið býður því bæði upp á skemmtilega og krefjandi keppni, ásamt góðri umgjörð og glæsilegu lokahófi á laugardagskvöldinu.

Skráningu og upplýsingar um mótið má finna í hlekk hér að neðan.