Pistlahöfundur:
  • 02.07.2026

Mótavaktin - Kylfingar leika víða

Banner for a Motivational event with large 'MÓTAVAKTIN' title and date '2. JÚLI 2026' set against a blurred outdoor background, logo upper-right edge.

Tímabil íslenskra atvinnu- og afrekskylfinga er í fullum gangi og í vikunni eru Íslendingar á meðal keppenda á Nordic Golf League, LET Access mótaröðinni og HotelPlanner Tour.

Nordic Golf League

Á Nordic Golf League mótaröðinni fer MoreGolf Mastercard Stockholm mótið fram dagana 1. til 3. júlí á Haninge Golfklubb í Svíþjóð. Þar eru þeir Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson á meðal keppenda.

Báðir hófu leik í gær og eru í góðum málum eftir fyrsta hring. Hlynur lék hringinn á 72 höggum, eða pari vallar, á meðan Dagbjartur kom inn á 73 höggum, einu höggi yfir pari.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins.

LET Access

Á LET Access mótaröðinni fer Swedish Strokeplay mótið fram dagana 1. til 3. júlí á Golf Uppsala Söderby í Svíþjóð. Þar eru þær Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir allar á meðal keppenda.

Hulda Clara og Ragnhildur léku báðar fyrsta hringinn á 74 höggum, eða einu höggi yfir pari. Andrea lék fyrsta hringinn á 77 höggum, en allar eru þær réttu megin við niðurskurðarlínuna eins og staðan er núna.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins.

HotelPlanner Tour

Haraldur Franklín Magnús er á meðal keppenda á Le Vaudreuil Golf Challenge mótinu á HotelPlanner Tour mótaröðinni sem fer fram dagana 2. til 5. júlí í Frakklandi. Mótið er leikið á Golf PGA France du Vaudreuil vellinum í Le Vaudreuil.

Haraldur hóf leik í dag og lék fyrsta hringinn á 74 höggum, eða tveimur höggum yfir pari. Hann fékk þrjá fugla á hringnum en tapaði fimm höggum.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins.