Pistlahöfundur:
  • 18.07.2026

Fjórir jafnir á toppnum og Guðrún Brá leiðir á heimavelli

Fyrsti keppnisdagur Hvaleyrarbikarsins 2026 fór fram á Hvaleyrarvelli í dag. Mikil spenna er í báðum flokkum eftir fyrsta hring mótsins, en fjórir kylfingar deila efsta sætinu í karlaflokki og Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiðir í kvennaflokki.

Hvaleyrarbikarinn er fimmta mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og fer fram dagana 17.-19. júlí.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Fjórir jafnir í karlaflokki

Róbert Leó Arnórsson, Aron Snær Júlíusson, Daníel Ísak Steinarsson og Sigurður Bjarki Blumenstein léku allir fyrsta hringinn á tveimur höggum undir pari og eru jafnir í efsta sæti.

Stutt er í næstu menn en Böðvar Bragi Pálsson, Guðmundur Snær Elíasson og Jóhannes Guðmundsson eru jafnir í fimmta sæti á einu höggi undir pari. Jóhannes hefur titil að verja á Hvaleyrarvelli eftir frábært mót árið 2025.

Aðeins eitt högg skilur því að sjö efstu kylfinga fyrir annan hringinn og ljóst að baráttan um Hvaleyrarbikarinn er galopin.

Staðan hjá körlum

Guðrún Brá efst á heimavelli

Í kvennaflokki er Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Golfklúbbnum Keili, í forystu eftir hring upp á eitt högg yfir pari. Guðrún Brá fékk tvo fugla og þrjá skolla á hringnum.

Þóra Sigríður Sveinsdóttir er önnur á tveimur höggum yfir pari og Perla Sól Sigurbrandsdóttir er í þriðja sæti á þremur yfir pari. Elsa Maren Steinarsdóttir er fjórða á fjórum yfir pari og Heiða Rakel Rafnsdóttir fimmta á fimm yfir pari.

Staðan hjá konum

Eftir annan hring mótsins verður niðurskurður, þar sem efstu 70% kylfinga halda áfram á lokahringinn.