Hið árlega góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu (shoot-out) verður haldið í 22. sinn á Nesvellinum mánudaginn 6. ágúst næstkomandi.
Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks og munu þau í ár leika í þágu „Barnaspítala Hringsins“.
Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð, fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri þar sem í allri þjónustu er áhersla lögð á að greina þarfir og auka vellíðan skjólstæðinga
Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst Einvigið sjálft (shoot-out) þar sem einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast að lokum um sigurinn.
Einvígið á Nesinu var fyrst haldið árið 1997 og á þessum tíma hefur Nesklúbburinn komið að því að styrkja félög og samtök sem láta sér hag barna varða um rúmlega tuttugu milljónir króna.
Í ár ætlar Nesklúbburinn fyrir tilstuðlan velunnara að gefa til Barnaspítalans Hringsins kr. 500.000 í þeirra þarfa verkefni. Mótið verður tekið upp og sýnt í sjónvarpi Símans skömmu síðar.
Þátttakendur í Einvíginu 2018
- Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG – Klúbbmeistari GKG 2018

Alfreð Brynjar Kristinssson, GKG. - Björgvin Sigurbergsson, GK – Margfaldur Íslandsmeistari

Björgvin Sigurbergsson sló fyrsta höggið á Íslandsmótinu en hann varð Íslandsmeistari síðast þegar mótið fór fram á Jaðarsvelli. - Björn Óskar Guðjónsson GM – Landsliðsmaður í golfi og 2. sæti á Íslandsmótinu í höggleik 2018

Björn Óskar Guðjónsson, GM. - Dagbjartur Sigurbrandsson, GR – Klúbbmeistari GR 2018 og Íslandsmeistari drengja 15-16 ára

Dagbjartur Sigurbrandsson. - Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, GS – Klúbbmeistari GS 2018

- Kristján Þór Einarsson, GM – Klúbbmeistari GM 2018 og sigurvegari Einvígisins 2017

Kristján Þór Einarsson. Mynd/seth@golf.is - Ólafur Björn Loftsson, NK- Klúbbmeistari Nesklúbbsins 2018 og atvinnukylfingur

Ólafur Björn Loftsson, GKG - Ragnhildur Kristinsdóttir, GR – Landsliðskona í golfi og Íslandsmeistari kvenna í holukeppni 2018

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR. Mynd/Hari - Ragnhildur Sigurðardóttir, GR – Klúbbmeistari GR 2018 og margfaldur Íslandsmeistari

Ragnhildur Sigurðardóttir. - Rúnar Arnórsson, GK – Landsliðsmaður í golfi og Íslandsmeistari karla í holukeppni 2018

Rúnar Arnórsson. Mynd/Hari










