Pistlahöfundur:
  • 30.10.2020

Viðbragðshópur GSÍ vinnur að því að greina stöðuna vegna nýrra sóttvarnatilmæla

Ríkisstjórnin kynnti í dag ný og strangari sóttvarnatilmæli vegna Covid-19 en undanfarið og boðaði nýja reglugerð um helgina um þá framkvæmd.

Reglugerðin mun hafa áhrif til breytinga á starfsemi golfklúbba landsins.

Þau áhrif eru ekki ljós á þessari stundu.

Viðbragðshópur GSÍ vinnur að því þessa stundina að greina stöðuna og mun senda frá sér tilkynningu til golfklúbba landsins eins fljótt og unnt er vegna stöðunnar.