Pistlahöfundur:
  • 23.06.2023

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fagnaði sigri á Íslandsmóti golfklúbba í drengjaflokki 16 ára og yngri

Íslandsmeistaralið GKG 16 ára og yngri. Mynd/BEG

Íslandsmót golfklúbba 2023 í flokki 16 ára og yngri fór fram á Strandarvelli hjá Golfklúbb Hellu dagana 21. – 22. júní. 

Alls tóku 6 drengjalið þátt.

Í drengjaflokki var keppt í einum riðli og leikin ein umferð í riðlinum þar sem öll liðin mætast innbyrðis. 

Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar stóð uppi sem sigurvegari og er Íslandsmeistari golfklúbba 2023 í drengjaflokki 16 ára og yngri. 

Golfklúbbur Akureyrar varð í öðru sæti og Golfklúbburinn Keilir í því þriðja. 

 

Öll úrslit leikja og lokastaða er hér fyrir neðan ásamt myndum frá mótinu. 

 

Golfklúbbur Akureyrar endaði í öðru sæti í drengjaflokki 16 ára og yngri.
3. umferð

Umferðir KK

1. umferð 2. umferð 3. umferð 4. umferð 5. umferð Smelltu hér fyrir allar umferðir í stúlkna- og piltaflokki