Pistlahöfundur:
  • 24.06.2023

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fagnaði sigri á Íslandsmóti golfklúbba í drengjaflokki 14 ára og yngri

Íslandsmót golfklúbba í aldursflokki 14 ára og yngri fór fram dagana 21.-23. júní og var leikið á Selsvelli hjá Golfklúbbnum á Flúðum. 

Alls tóku 14 lið þátt í drengjaflokki.

Keppnin hófst á að liðin léku 18 holu höggleik þar sem þrjú bestu skor liðsins töldu. 

Raðað var í riðla eftir stöðunni úr höggleiknum. 

Þá skiptist keppnin í holukeppnis og texas scramble fyrirkomulag eftir því í hvaða sæti lið lenti.

Úrslit úr höggleik má sjá hér – DRENGIR

Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar sigraði og er Íslandsmeistari golfklúbba 2023 í drengjaflokki 14 ára og yngri. Golfklúbburinn Keilir varð í öðru sæti og Golfklúbbur Akureyrar í því þriðja. 

 

Golfklúbburinn Keilir varð í öðru sæti.
Smelltu hér fyrir allar umferðir í holukeppni og texas Smelltu hér fyrir myndasafn frá Selsvelli:
María Högnadóttir fór holu í höggi á 5. holu í höggleiknum á Selsvelli á Flúðum.

Stúlkur – staðan hjá liðum í keppni um 1. – 7. sæti (holukeppni)

Drengir – staðan hjá liðum í keppni um 1. – 8. sæti