Pistlahöfundur:
  • 18.03.2026

Andrea, Guðrún og Hulda hefja leik á Platinum Ladies Open

Andrea Bergsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir

Andrea Bergsdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir hefja leik í dag á Platinum Ladies Open mótinu á Sunshine mótaröðinni í Suður-Afríku. Mótið fer fram á Blair Atholl Golf and Equestrian Estate vellinum dagana 18.-20. mars.

Þetta er fjórða og síðasta mót Guðrúnar á Sunshine mótaröðinni í ár, en hún hefur leikið gott golf í Suður-Afríku. Hún hafnaði í 3.sæti í fyrsta móti tímabilsins og í 23.sæti í því næsta. Íslandsmeistarinn náði ekki í gegnum niðurskurð í síðustu viku.

Hulda Clara og Andrea eru báðar að leika í sínu þriðja móti á tímabilinu. Hulda varð 25. í Jabra Standard Bank mótinu í byrjun mars og lék frábært golf á Jabra Ladies Open í síðustu viku, þegar hún endaði fjórða.

Andrea náði ekki í gegnum niðurskurð í fyrsta mótinu sínu en endaði jöfn í 24. sætinu á Jabra Ladies Open í síðustu viku.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins