Pistlahöfundur:
  • 20.05.2026

Andrea, Hulda og Ragnhildur jafnar í þriðja sæti eftir fyrsta hring

Promotional golf poster for Access Series showing three female golfers mid-swing, with event logo top left and sponsor logos along the bottom; headline mentions Andrea, Hulda and Ragnhildur in bold Icelandic text.
Frábær fyrsti hringur!

Íslensku kylfingarnir á LET Access mótaröðinni áttu frábæran dag í dag, þegar fyrsti hringur Allegria Ladies Open mótsins fór fram í Austurríki. Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru jafnar í þriðja sæti eftir hringinn, en þær komu allar í hús á 68 höggum, tveimur undir pari vallarins.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Mótið fer fram dagana 20.-22. maí á Sudburgenland vellinum í Allegria Golf Resort í Austurríki. Völlurinn er krefjandi, en einungis sextán kylfingar léku undir pari í dag.

Hulda Clara hóf hring sinn af miklum krafti og fékk fugl á fyrstu tvær holurnar. Hún fékk alls fjóra fugla og tvo skolla á hringnum.

Hringur Huldu

Ragnhildur átti einnig frábæran dag. Hún fékk sex fugla á hringnum, tvo skolla og einn tvöfaldan skolla. Enginn kylfingur mótsins fékk fleiri fugla en Ragnhildur í dag.

Hringur Ragnhildar

Andrea Bergsdóttir fékk, líkt og Hulda, fjóra fugla og tvo skolla. Hringir þeirra voru einstaklega líkir, en þær fengu sama skorið á tólf holum.

Hringur Andreu

Á undan íslensku kylfingunum eru heimakonan Johanna Ebner á þremur undir pari, og hin danska Cecilie Eggersen. Hún lék hring dagsins á fimm höggum undir pari og leiðir með tveimur höggum.

Það verður spennandi að fylgjast með okkar kylfingum í toppbaráttu næstu dagana! Óskum þeim góðs gengis.