Pistlahöfundur:
  • 07.06.2026

Andrea og Ragnhildur enduðu jafnar í ellefta sæti

Íslensku kylfingarnir á LET Access hafa farið vel af stað í sumar

Arkea Montauban Ladies Open mótinu á LET Access mótaröðinni lauk í dag. Mótið var það þriðja á LET Access mótaröðinni í sumar, en þrír íslenskir kylfingar voru á meðal keppenda: Hulda Clara Gestsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir.

Hér má sjá úrslit mótsins

Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir enduðu jafnar í ellefta sæti mótsins á einu höggi undir pari.

Ragnhildur lék hringi mótsins á 73, 69 og 73 höggum. Hún hefur byrjað tímabilið af krafti og náð í gegnum niðurskurð í öllum þremur mótunum. Fyrir mótið var Ragnhildur fjórða á stigalista mótaraðarinnar og heldur hún því sæti sínu sem einn af efstu kylfingum listans.

Fyrsti hringur Ragnhildar
Annar hringur Ragnhildar
Þriðji hringur Ragnhildar

Andrea átti frábæran lokahring og kom í hús á 69 höggum, sem reyndist þriðji besti hringur dagsins. Hún fékk þar fimm fugla og tvo skolla. Andrea stökk upp um 29 sæti á milli hringja og náði sínum besta árangri á tímabilinu.

Fyrsti hringur Andreu
Annar hringur Andreu
Þriðji hringur Andreu

Hulda Clara endaði jöfn í 58. sæti og náði ekki í gegnum niðurskurð.