Pistlahöfundur:
  • 12.07.2026

Bakkakots- og Sveinskotsmót Golf 14 - rástímar og staðan

Poster for Golf14 youth golf event; left panel shows 'SveinskoTsvöllur' for ages 8-10, right panel 'Bakkakotsvöllur' for ages 11-14, with a July 14 date and central logo of two kids high-fiving.

Næsta Golf 14 mót sumarsins fer fram þriðjudaginn 14. júlí. Viðburðurinn verður haldinn á tveimur stöðum, annars vegar verður Bakkakotsmótið hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar og hins vegar verður Sveinskotsmótið hjá Golfklúbbnum Keili.

Bakkakotsmótið fer fram á Bakkakotsvelli og er ætlað kylfingum á aldrinum 11-14 ára. Keppt er í flokkum 11-12 ára og 13-14 ára drengja og stúlkna. Sveinskotsmótið fer fram hjá Keili og er ætlað yngstu kylfingunum, þar sem keppt verður í flokkum 8 ára og yngri og 9-10 ára drengja og stúlkna.

Hér má fylgjast með stöðunni í Sveinskotsmótinu

Hér má fylgjast með stöðunni í Bakkakotsmótinu

Mynd úr Bakkakotsmótinu 2025

Leikinn verður höggleikur án forgjafar og ræst verður út með shotgun fyrirkomulagi eftir flokkum. Að leik loknum verður verðlaunaafhending og veitingar fyrir keppendur.