Pistlahöfundur:
  • 09.05.2025

Góður árangur í Nordic Golf League

Fimm íslenskir kylfingar hófu leik á Bravo Tours Open mótinu á miðvikudaginn. Mótið er hluti af Nordic Golf League og fer fram á Royal Oak vellinum í Danmörku.

Aron Snær Júlíusson, ríkjandi Íslandsmeistari, lék frábærlega í mótinu og endaði jafn í þriðja sæti á -9 höggum í heildina. Hann lék fyrstu tvo hringina á 67 og 66 höggum, og var í lokahollinu á síðasta keppnisdegi. Lokahringinn spilaði hann á 74 höggum sem skilaði honum þessum flotta árangri.

Hringir Arons

Sigurður Arnar Garðarsson endaði jafn í 13. sæti á -7 höggum. Sigurður lék gott og stöðugt golf allt mótið og skilaði inn hringjum upp á 71, 69 og 69 högg.

Hringir Sigga

Hlynur Bergsson endaði jafn í 26. sæti mótsins á -5 höggum í heildina. Eftir frábæran fyrsta hring upp á 66 högg, þar sem Hlynur leiddi mótið á tímabili, voru það tvær holur sem reyndust honum dýrar í seinni hluta mótsins.

Hringir Hlyns

Nafnarnir Hákon Örn Magnússon og Hákon Harðarson náðu ekki í gegn um niðurskurð í mótinu

Hér má sjá úrslit mótsins