Pistlahöfundur:
  • 26.08.2024

Jón Ómar er Íslandsmeistari í holukeppni 2024 í strákaflokki 12 ára og yngri

Frá vinstri: Óskar Jóhann Sigurðsson, GM, Jón Ómar Sveinsson, GK og Jón Reykdal Snorrason, GR.

Íslandsmót unglinga 2024 í holukeppni fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 24.-26. ágúst.

Úrslitin réðust í dag, mánudaginn 26. ágúst.

Til úrslita í strákaflokki 12 ára og yngri léku Jón Ómar Sveinsson, GK og Jón Reykdal Snorrason, GR til úrslita. Þar hafði Jón Ómar betur 4/2.

Óskar Jóhann Sigurðsson, GM, varð þriðji en hann sigraði Kristófer Áka Aðalsteinsson, GA í leiknum um bronsverðlaunin 2/1

Öll úrslit úr þessum flokki eru hér fyrir neðan.

Frá vinstri: Óskar Jóhann Sigurðsson, GM, Jón Ómar Sveinsson, GK og Jón Reykdal Snorrason, GR.


Smelltu hér fyrir úrslit leikja.