Pistlahöfundur:
  • 10.06.2026

Fjórir Íslendingar keppa á EM einstaklinga 50+ í Kýpur

Four adults in smart casual clothing pose for a photo in front of a sponsor wall at the European Golf Association event, with flags nearby.
Íslenski hópurinn

Fjórir íslenskir kylfingar taka þátt í Evrópumeistaramóti einstaklinga 50+ sem fram fer dagana 11.-13. júní á Eléa Golf Club í Kýpur. Alls eru 144 keppendur skráðir til leiks á þessu 31. Evrópumeistaramóti, í flokki karla og kvenna.

Fylgjast með skori

Fyrir Íslands hönd keppa þau Sigurbjörn Þorgeirsson, Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, Þórdís Geirsdóttir og Ragnheiður Sigurðardóttir.

Í færslu Ragnheiðar á Facebook kemur fram að völlurinn sé hæðóttur og krefjandi. Hitinn var rétt undir 30 gráðum á fyrsta æfingahringnum og hópurinn vel stemmdur fyrir mótinu.

Alls taka 90 karlar og 54 konur þátt í mótinu sem leikið er yfir 54 holur. Eftir 36 holur verður skorið niður, þar sem 54 efstu karlarnir og 33 efstu konurnar halda áfram leik. Verðlaun eru veitt fyrir efstu þrjá kylfinga mótsins ásamt aukaverðlaunum fyrir bestan árangur í flokki 60+. Þórdís Geirsdóttir er eini íslenski kylfingurinn sem er á meðal keppenda í þeim

Við óskum okkar kylfingum góðs gengis í mótinu.