Pistlahöfundur:
  • 26.05.2026

Golfdagurinn á Suðurlandi fer fram laugardaginn 30. maí

Hér verður gaman

Golfdagurinn á Suðurlandi fer fram laugardaginn 30. maí!

Tekið verður á móti fólki í golfskála GÚ. Dagskráin hefst kl. 11:00 og verður grillað frá kl. 12:00. Boðið verður upp á skemmtilega kynningu á grunnatriðum golfíþróttarinnar undir handleiðslu PGA golfkennara, ásamt leikjum og grillveislu fyrir þátttakendur. Golfdagurinn er fyrir alla fjölskylduna en hér er frábært tækifæri til að kynnast golfíþróttinni!

🗓️30. maí

🕐11:00

📍Golfklúbburinn Úthlíð

Fyrsti Golfdagur sumarsins!

Golfdagurinn er samstarfsverkefni GSÍ, KPMG, PGA og GÚ.