Pistlahöfundur:
  • 17.11.2025

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fær sjálfbærniverðlaun GSÍ árið 2025

Sigurjón Sigurjónsson og Hansína Þorkelsdóttir

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hlaut sjálfbærniverðlaun Golfsambands Íslands á golfþingi GSÍ þann 15. nóvember síðastliðinn.

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (GKG) hefur í gegnum árin verið leiðandi í
sjálfbærni innan íslensks golfíþróttalífs. Klúbburinn hefur sýnt fram á að sjálfbærni er
ekki aðeins stefna heldur hluti af daglegri starfsemi, með markvissum aðgerðum sem
stuðla að umhverfisvernd, samfélagslegri ábyrgð og góðum stjórnarháttum.

Sigurjón Sigurjónsson, stjórnarmaður í GKG, tók á móti verðlaununum fyrir hönd klúbbsins. 

Hulda Bjarnadóttir og Sigurjón Sigurjónsson

GEO-vottun 2025

GKG lauk alþjóðlegri GEO Certified™ vottun sem staðfestir sjálfbærni í rekstri golfklúbba. Vottunin felur í sér ströng viðmið um:

  • Umhverfisvernd og vistvæna umhirðu golfvallar.
  • Ábyrga nýtingu vatns og orku.
  • Samfélagslega ábyrgð og góða stjórnarhætti.

Þessi vottun staðfestir að GKG uppfyllir alþjóðlegar kröfur um sjálfbærni og er
fyrirmynd annarra klúbba.

Sjálfbærni að leiðarljósi

Klúbburinn hefur í mörg ár unnið markvisst að vistvænum lausnum:

  • Lágmörkun efnavinnslu
  • Rafmagnsvélar og orkusparandi aðgerðir
  • Endurnýting og úrgangsstýring
  • Verndun og efling líffræðilegrar fjölbreytni, m.a. með, fjölbreyttu gróðurvali og stuðningi við búsvæði fugla og smádýra

Samfélagsleg ábyrgð

  • Fræðsla til félagsmanna um umhverfisvernd og sjálfbærni.
  • Stuðningur við heilsueflingu og aðgengi að íþróttinni fyrir breiðan hóp.
  • Samstarf við GSÍ og önnur félög um þróun sjálfbærra lausna.

Fyrirmyndarhlutverk

GKG er leiðandi í sjálfbærni innan íslensks golfíþróttalífs og hvetur aðra klúbba til umbóta.

Við óskum Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar til hamingju með viðurkenninguna, og sitt góða starf í þágu umhverfisins.