Pistlahöfundur:
  • 23.06.2023

Golfklúbbur Reykjavíkur fagnaði sigri á Íslandsmóti golfklúbba í drengjaflokki 21 árs og yngri

Íslandsmeistaralið GR 2023 á Íslandsmóti golfklúbba 21 árs og yngri drengja

Golfklúbbur Reykjavíkur fagnaði í gærkvöldi sigri á Íslandsmóti golfklúbba í flokki 21 árs og yngri í drengjaflokki. 

Mótið fór fram á Svarfhólsvelli hjá Golfklúbbi Selfoss dagana 20.-22. júní. Aðstæður á lokahringnum voru krefjandi, mikil úrkoma og rok, og réðust úrslitin í síðasta leiknum seint í gærkvöld.  

Keppnin var mjög spennandi þar sem að GR sigraði Golfklúbb Akureyrar, GA, 2-1 í úrslitaleiknum. Í leiknum um bronsverðlaunin hafði Golfklúbburinn Keilir betur gegn Golfklúbbi Suðurnesja 2-1 – þar sem að úrslitin réðust í bráðabana á 19. í öðrum tvímenningsleiknum.  

Drengirnir léku höggleik á fyrsta keppnisdegi og eftir árangri í höggleiknum var liðunum raðað í riðla. Efstu liðin úr A og B riðli léku um Íslandsmeistaratitilinn, liðin í 2. sæti í A og B riðli léku um bronsverðlaunin og liðin í 3. sæti í A og B léku um 5 sætið. C og D riðlar léku svo um 8. – 13. sæti. 

Í holukeppninni var leikinn einn fjórmenningur og tveir tvímenningsleikir. Í fjórmenningsleikjunum léku tveir leikmenn saman í liði og leika þeir einum bolta og slá þeir upphafshöggin til skiptis. Í tvímenningnum er einn leikmaður úr hvoru liði sem keppa gegn hvorum öðrum í holukeppni.

Smelltu hér fyrir úrslit í höggleik pilta.

Smelltu hér fyrir myndasafn frá Selfossi. 

Golfklúbbur Akureyrar endaði í öðru sæti.
Golfklúbburinn Keilir endaði í þriðja sæti.

Staðan KVK

Sæti

Staðan KK

8. – 13. sæti 1. – 5. sæti

Umferðir KVK

1. umferð 2. umferð 3. umferð 4. umferð 5. umferð

Umferðir KK

1. umferð 2. umferð 3. umferð Úrslitaleikir 8. – 13. sæti Úrslitaleikir 1. – 6. sæti Smelltu hér fyrir allar umferðir í stúlknaflokki í einu skjali Smelltu hér fyrir allar umferðir í piltaflokki í einu skjali