Pistlahöfundur:
  • 18.02.2019

Guðmundur Ágúst í 15. sæti fyrir lokahringinn á Spáni

Guðmundur Ágúst
Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Mynd/seth@golf.is

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í 15. sæti fyrir lokahringinn á PGA Catalunya Resort Championship.

Mótið er hluti af atvinnumótaröðinni Nordic Tour en Guðmundur Ágúst fagnaði sigri á síðasta móti á þessari mótaröð.

GR-ingurinn er á -1 samtals (68-73).

Þrír aðrir íslenskir kylfingar tóku þátt á þessu móti en þeir eru allir úr leik.

Axel Bóasson, GK (78-67) +3
Haraldur Franklín Magnús, GR (74-74) +6
Andri Þór Björnsson, GR (73-76) +7